Eru vörubílstjórar nú alveg búnir að glata allri rökhugsun. Já nú hafa þeir tekið uppá því að loka helstu stofnæðum borgarinnar með dýru koppabílum sínum sem að þeir sjá svo mikið eftir að hafa keypt að þeir þurfa að væla í ríkinu til þess að koma þeim til bjargar. Afborganir eru orðnar svo miklar af 18 milljónakróna skuldinni sem að hvílir á öðrumhvorum bíl eða meira en það. Er eldsneytisverð her á landi eitthvað dýrara en annars staðar, noregur – 166 krónur á líterinn, svíþjóð 159 og svo mætti lengi telja.
Og ef ríkið lækkar álögur á eldsneyti, hvað gerist þá? Það sama og með matarskattinn, birgjar og aðrir verslunarmenn hirða þær álögur og græða enn meira en áður og líklega hækka verðið.
Nú hef ég átt í miklum rökræðum við þessa umræddu menn og þá sem fremstir í flokki voru inn á spjallsvæði Geirans, sem að er svona trukka og vélakarlasíða. Ég ákvað að mótmæla þeim að krafti og fékk góð viðbrögð tæp 70 svör
Allir voru þeir á móti mér og sögðu að ég vissi ekkert í minn haus, sem að er nú ekkert vitlaust. En enginn gat komið með haldbær rök fyrir þessari aðgerð þeirra nema það að olíuverð væri hátt, og að þeir borgi þungaskatt ásamt olígjaldi. Ég spyr er eitthvað sanngjarnt ef að þeir þyrftu ekki að borga þungaskatt á hvern ekinn km? Jújú þeir segja að það sé nóg að borga olíugjald því að þeir eyða meiru og borga því meira til ríkisins. Þeir gleymdu þó því að þeir slíta vegunum á við fleiri þúsundir fólksbíla aðeins einn trailer og ásamt því að eyða meiru eru þeir því að menga mun meira. Enn eitt er varðar ástæðu þess að þeir borgi þungaskatt er sá að þeir fá í kringum 70-100.þ krónur á dag í tekjur. Af þeim fara 22500 að hámarki í olíu og miðast það við 300 km akstur sem að er mjög mikið og 150 kr/líterinn af olíu (þó meira ef um flutningabíl er að ræða, en á móti koma hærri tekjur). Laun eru að jafnaði 20.000 í laun og launatengd gjöld og þá er eftir 27500 – 57500 kr sem að fara í önnur gjöld og afborganir af bílunum sem að eru líklega á bilinu 100.þ-150.þ á mánuði.
Fyrir utan allt þetta, þá gátu þau ekki einu sinni fengið gáfulega menn til þess að tala fyrir sig, einn sakar lögregluna um að handtaka sig fyrir mótmælin vegna háralitar hans, annar segir þessi fleygu orð um almúgan „ það eru einn og einn fúlir en flestir eru eru (mikið stam) eru eru eru fúlir“ og sá síðasti sagði nánast að þeir væru að mótmæla því að hafa ekki stað útá landi til að kúka á
.
Svona er þetta kjánaleg mótmæli sem að þeir segja síðan að allir séu svo hrifnir af, held að það sé ekki alveg rétt.
bless bless